Grunnskóli Seltjarnarness: Mýrarhússaskóli - Valhúsaskóli
Matarkortin í Valhúsaskóla

Matarkortin í Valhúsaskóla

 

Í 7. – 10. Bekk (Valhúsaskóla) eru nemendur með tvær gerðir af matarkortum. 

 

Matarkort nr. 1 (hvítt) – EINGÖNGU DEBETKORT

Þau geta keypt sér að borða í mötuneytinu:

·         Samlokur

·         Skyr

·         Ávexti

·         safa o.fl.  

·         Þau geta EKKI keypt heitan mat með debetkortinu. 

 

Þessir nemendur fá matarkort í hendurnar sem er hvítt á litinn  og með mynd af viðkomandi nemanda.

Til þess að nemendur geti keypt sér að borða þurfa foreldrar/forráðamenn að vera búnir að leggja inn á reikning (sjá neðst á þessu blaði).  Kortið virkar eins og debetkort; þau geta keypt sér ef innistæða er fyrir hendi.

 

Matarkort nr. 2 (appelsínugult) – FYRIR MATARÁSKRIFT OG DEBETKORT

Þau geta verið í áskrift að heitum mat og fer skráning fram í gegnum Rafrænt Seltjarnarnes.  Þessir nemendur fá matarkort í hendurnar sem er appelsínugult á litinn  og með mynd af viðkomandi.  Þau  sýna kortið í mötuneytinu til þess að fá að borða í hádeginu.

 

Athugið:Þeir nemendur sem eru í áskrift að heitum mat geta einnig notað kortið sem debetkort, ef innistæða er fyrir hendi. 

 

 

Lagt inn á reikning nemenda

Lagt er inn á reikning sem fyrirtækið Kortalausnir eru skráðir fyrir en þeir sjá um að þjónusta skólann með matarkortin.

Reikningur:     (banki) 515      (hb) 04            (reikningsnúmer) 252032

Kennitala:       620202-4360  

 

 


Hagnýtt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica