Grunnskóli Seltjarnarness: Mýrarhússaskóli - Valhúsaskóli
Unglingaráðgjafi

Unglingaráðgjafi í 7. - 10.bekk

 

Hlutverk unglingaráðgjafa er meðal annars:

·         Að veita einstaklingsmiðaða ráðgjöf

·         Að veita nemendum stuðning

·         Að aðstoða við úrlausn vandamála meðal unglinga

·         Að vinna að forvörnum, t.d. vörnum gegn vímuefnum og einelti

·         Að veita nemendum stuðning vegna vandamála heima fyrir

·         Að vera í samstarfi við heimili og forráðamenn unglinganna

·         Að vera í samstarfi við kennara og aðra starfsmenn skólans

·         Að finna og þróa úrræði við hæfi í samráði við nemendur og fjölskyldur þeirra

 

Unglingaráðgjafi er bundinn þagnarskyldu.

Hildigunnur Magnúsdóttir er unglingaráðgjafi í Valhúsaskóla og er hún með fasta viðveru í skólanum á fimmtudögum á milli kl. 12-15. Á öðrum tímum er hægt að ná í hana hjá félagsþjónustu Seltjarnarness í síma 5959-100 eða senda tölupóst á netfangið: hildigunnur@seltjarnarnes.is .

 


Nám og kennsla



Þetta vefsvæði byggir á Eplica