Skólasafn Mýrarhúsaskóla
Skólasafn Mýrarhúsaskóla
Skólasafn Mýrarhúsaskóla er nokkuð vel búið bókum bæði fyrir nemendur og kennara. Á safninu er einnig að finna myndbönd, hljóðbækur, hljómdiska og spil.
Skólasafnið veitir alla almenna þjónustu s.s. útlán, upplýsingaþjónustu og aðstoð við heimildaleit.
Yngstu bekkirnir koma á safnið einu sinni í viku í sögustund. Eldri nemendur koma á safnið og vinna verkefni í samráði við umsjónarkennara.
Safnið er opið frá 8:30 – 16 alla daga nema á föstudögum þá lokar kl. 14. Á opnunartíma safnsins er nemendum frjálst að koma til að fá lánaðar bækur eða skoða, lesa og vinna á safninu.
Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla er upplýsingamennt þverfagleg námsgrein þar sem áhersla er lögð á að kenna nemendum aðferðir og tækni við öflun, úrvinnslu og miðlun upplýsinga í tengslum við allt nám. Þess vegna er upplýsingamennt ekki kennd sem sér fag á safninu heldur er leitast við að flétta hana inn í annað nám nemenda.
Ingibjörg Ingadóttir
Bókasafns- og upplýsingafræðingur
