Talmeinafræðingur
Talmeinafræðingur er ráðinn að skólanum sem verktaki í ákveðið tímamagn á viku og vinnur undir verkstjórn deildarstjóra sérkennslu.
Deildarstjóri sérkennslu fundar með talmeinafræðingi í upphafi skólaárs og í byrjun janúar til að fara yfir hvaða nemendur þurfa á þjónustu hans að halda. Forgangsröðun nemenda í talkennslu er sameiginleg ákvörðun talmeinafræðings og deildarstjóra sérkennslu.
Þegar talmeinafræðingur hefur lagt fyrir nemendur skimun eða málþroskagreiningu þá kallar hann til fundar viðkomandi umsjónarkennara, deildarstjóra sérkennslu, sérkennara og foreldra til að fara yfir niðurstöður þessa.
