1.kafli Laxdæla Unnur djúpúðga
Quiz
Hver var Ketill flatnefur?
- Bóndi í Sælingsdal
- Höfðingi í Noregi
- Þræll Haraldar hárfagra
- Sonur Unnar djúpúðgu
Hver lagði Noreg undir sig?
- Ólafur konungur Tryggvason
- Hrafnkell Hallfreðarson
- Haraldur hárfagri
- Höskuldur Dala-Kollsson
Hvað hétu synir Ketils sem fluttu til Íslands?
- Þorvaldur og Þórður
- Þórir og Ásbjörn
- Kjartan og Bolli
- Helgi og Björn
Hvar settist Björn að?
- Á Birnustöðum
- Í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi
- Í Stykkishólmi
- Á Borg á Mýrum
Hvar settist Helgi að?
- Á Esjubergi á Kjalarnesi
- Í Brautarholti á Kjalarnesi
- Á Akranesi
- Í Reykjavík
Hvert barna Ketils flatnefs fór með honum til Skotlands?
- Þórunn hyrna
- Ólafur feilan
- Þorsteinn
- Unnur djúpúðga
Hver urðu endalok Þorsteins sonar Unnar?
- Hann dó úr krabbameini
- Hann drukknaði við Orkneyjar
- Skotar drápu hann
- Þrælarnir hans drápu hann
Hvar lét Unnur smíða skip?
- Inni í skógi á Katanesi
- Inni í skógi í Noregi
- Í fjörunni á Katanesi
- Í Þrándheimi
Hvar kom Unnur djúpúðga að landi á Íslandi?
- Á Austfjörðum
- Í Eyjafirði
- Á Suðurlandi
- Við Hornafjörð
Unnur fór að hitta Helga bróður sinn á Esjubergi. Hvers vegna reiddist hún honum?
- Hann vildi ekki taka við nema helmingnum af fólkinu sem hún var með
- Hann bauð henni ekki inn í bæinn sinn
- Hann sagði að hún gæti sofið í hlöðunni
- Hann talaði ekki við hana
Hvar nam Unnur djúpúðga land?
- Í Eyjafirði
- Í Skagafirði
- Í Dölunum
- Á Snæfellsnesi
Hvað hér bærinn hennar Unnar?
- Garpsdalur
- Laugar
- Hjarðarholt
- Hvammur
Hvaða manni gifti Unnur Þorgerði sonardóttur sína?
- Helga magra
- Dala-Kolli
- Höskuldi
- Geirmundi
Hvaða dal gaf hún þeim?
- Laxárdal
- Garpsdal
- Sælingsdal
- Hjarðardal
Hvað hét yngsti sonur Þorsteins sonar Unnar?
- Gilli garpur
- Ásgeir keilan
- Ólafur feilan
- Helgi magri
Hvernig fór útför Unnar djúpúðgu fram?
- Lík hennar var lagt í skip í haug og svo var haugnum lokað
- Lík hennar var lagt í skip og það síðan brennt
- Hún var jörðuð í kirkjugarðinum í Hvammi
- Hún var jörðuð undir kirkjugólfinu í Hvammskirkju