Skólinn
Fréttir

Göngum í skólann

2.5.2019 Fréttir

Á morgun, föstudaginn 3. maí, hefst Göngum í skólann verkefnið okkar og mun það standa til föstudagsins 17. maí.

Markmið verkefnisins er að:

  • hvetja til aukinnar hreyfingar
  • auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann
  • fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar
  • minnka bílaumferð í nágrenni grunnskóla

     

Við hvetjum foreldra til að fylgja yngstu börnunum, gangandi eða hjólandi og nota þá tækifærið og kenna þeim öruggustu leiðina í skólann. Félagar í Slysavarnarfélaginu  Vörðunni koma þriðjudaginn 7. maí og bjóða fram aðstoð við að stilla hjólahjálmana. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn. Sá árgangur yngri barna sem nær besta árangrinum fær svo Græna skóinn.