Styrkveiting úr Sprotasjóði vegna verkefnisins: Sex ný lönd á Fjölmenningarvef barna.
Anna Guðrún Júlíusdóttir nýbúakennari fékk nýlega 600 þús. kr. styrk úr Sprotasjóði, þróunarsjóði menntamálaráðuneytisins til að bæta sex löndum inn á Fjölmenningarvef barna: http://www.fjolmenningarvefurbarna.net.
Vefurinn er sprottinn af vinnu með börnum sem flytja með foreldrum sínum víða að úr heiminum til að búa á Íslandi, veittar eru fjölþættar upplýsingar um upprunalönd barnanna. Í grunnskólum Seltjarnarness eru m.a. nemendur frá Úganda, Portúgal og Ítalíu, Spáni, Serbíu og Makedóníu en það eru þau lönd sem bætt verður á vefinn. Nú eru 23 lönd á vefnum. Vefurinn er upplýsingaveita fyrir alla sem vinna með börnum af erlendum uppruna.
Anna Guðrún á hugmyndina að vefnum og er jafnframt höfundur og vefari hans. Hugmyndin varð til haustið 2000 þegar móttökudeildin í Breiðholtsskóla var opnuð . Fjölmenningarvefurinn fékk Hvatningarverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur árið 2003 og viðurkenningu frá Alþjóðahúsinu: ,,Vel að verki staðið” fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á Íslandi árið 2006.