Námsferð starfsfólks GS
Í vor fer rúmlega 60 manna hópur frá Grunnskóla Seltjarnarness í námsferð til Minneapolis. Tilgangur ferðarinnar er tveggja daga framhaldsnámskeið í Uppeldi til ábyrgðar (Teaching Restitution in the Classroom). Auk þess verður farið í heimsókn í tvo skóla í borginni, annan fyrir yngri nemendur en hinn fyrir unglingastigið.
Þetta námskeið er mjög dýrt og skólinn hefur ekki tök á að greiða það að fullu fyrir starfsfólkið. Þrátt fyrir það er mikill áhugi og því hefur hópurinn gripið til ýmissa ráða til þess að safna í ferðasjóð. Búið er að gefa út matreiðslubók, Bara hollt, sem verið er að selja og á foreldradaginn voru seldar vöfflur og kaffi. Þetta tiltæki hlaut góðar undirtektir foreldra og þökkum við kærlega fyrir góðar undirtektir.