Skólinn
Fréttir
IMG_1249

Skólahlaup Valhúsaskóla 2012

25.9.2012 Fréttir

Föstudaginn 28.september kl. 9.00 verður  Skólahlaup Valhúsaskóla haldið. 

Þá hlaupa allir nemendur skólans frá gervigrasi að bílastæði Golfskála. 

Starfsfólk skólans aðstoðar íþróttakennara við að halda utan um framkvæmd hlaupsins. Ávalt hefur skapast skemmtileg stemning í skólanum  þegar haldin hafa verið skólahlaup. Vonumst við til þess að svo verði einnig í ár og að allir mæti með bros á vör.IMG_1810

Íþróttakennarar leggja ríka áherslu á það að hver og einn nemandi fari í hlaupið á sínum forsendum.  Sumir nemendur eru vel þjálfaðir og í góðu líkamlegu ástandi meðan aðrir nemendur hafa minna gert af því að stunda hreyfingu reglulega og eru því ekki í eins góðri þjálfun.  Þó svo að veittar verði viðurkenningar fyrir hraðskreiðustu hlaupagarpana, er aðal markmið skólahlaupsins  að hver nemandi fái að njóta hollrar og góðrar hreyfingar og útivistar í góðra vina hópi skólafélaga og starfsfólks.  Við upphaf  hlaupsins fer fram upphitun á gervigrasvelli.  Þar eru nemendur með bestu tímana frá því árinu á undan, þ.e.a.s. á tímatökuprófum,  kallaðir upp og klæddir í gular treyjur eins og tíðkast í frönsku hjólreiðakeppninni (Tour de France).   Að venju verða kennarar á leiðinni með sjúkratösku ef einhverjir  nemendur meiðast og eins á gervigrasvelli þar sem kennarar taka vel á móti hlaupagörpunum og aðstoða við teygjuæfingar.  Nemendur fá allar nánari upplýsingar frá  íþrótta- og umsjónakennurum, nokkrum dögum fyrir hlaupið.IMG_1282

Gera má ráð fyrir að  ansi þröngt verði á þingi í búningsherbergjum í íþróttamiðstöð eftir hlaupið.  Þeir nemendur sem búa nálægt skólanum mættu því gjarnan fara heim í sturtu. Mikilvægt er að allir sýni þolinmæði og háttvísi í búningsklefum og íþróttamiðstöð J

Mötuneytið er svo opið eins og venjulega fyrir svanga hlaupagarpa, en þeir sem vilja snæða heima eftir sturtu mega gera það. Ráðgert er að hefja kennslu aftur kl.10.40 en gert verður hlé á kennslu um hádegisbilið þar sem  veittar verða viðurkenningar fyrir bestu afrekin í hverjum árgangi fyrir sig.

 

Mikilvægt er að forráðamaður láti skólann vita ef nemandi getur ekki tekið þátt í hlaupinu af einhverri ástæðu! Ef forráðamaður óskar eftir því að nemandi hjóli eða línuskauti frekar en að hlaupa þarf að senda póst á íþróttakennara í síðasta lagi fimmtudaginn 27. september.

 

 

Bestu kveðjur frá

 

Mettu og Hrund

íþróttakennurum Valhúsaskóla