
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2013
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður haldin þriðjudaginn, 19. mars n.k., kl.17:00, í Félagsheimilinu í Garðaholti, Garðabæ.
Haustið 2007 hófst samvinna milli Garðabæjar og Seltjarnarness um lokahátíðina og er þetta í sjöunda sinn sem haldin er sameiginleg lokahátíð.
Upplestrarkeppnin hefst formlega ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16.nóvember. Þá hefst undirbúningur allra nemenda í 7. bekk. Síðan eru valdir nemendur sem verða fulltrúar okkará lokahátíðinni.
Í ár lesa ellefu nemendur frá fimm skólum, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla, Valhúsaskóla og Vífilsskóla.
Skemmtiatriði verða frá öllum skólunum.