Göngum í skólann
Miðvikudaginn 4. september, hefst Göngum í skólann verkefnið okkar og mun það standa til 18. sept. Þetta er í sjöunda sinn sem Ísland er þátttakandi í þessu verkefni og stöðugt bætast fleiri skólar í hópinn. Við höfum verið með frá upphafi. Í fyrra voru 63 skólar á landinu skráðir til leiks.
Markmið verkefnisins er m.a. að:
· hvetja til aukinnar hreyfingar
· auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann
· fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar
· minnka bílaumferð í nágrenni grunnskóla
Við hvetjum foreldra til að fylgja yngstu börnunum, gangandi eða hjólandi og nota þá tækifærið og kenna þeim öruggustu leiðina í skólann. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestan árangur. Þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn til varðveislu þar til næsta Göngum í skólann keppni verður í vor.