110 gjafir í „jól í skókassa“ verkefninu í Grunnskóla Seltjarnarness í ár
Kærar þakkir fyrir 110 gjafir í „jól í skókassa“ verkefninu í Grunnskóla Seltjarnarness í ár sem bárust frá nemendum, foreldrum þeirra og starfsfólki skólans. Hver einasta gjöf skiptir máli því hún er gjöf til barns sem býr við mjög erfiðar aðstæður í Úkraínu hvort sem það er munaðarlaust, fatlað, sjúkt eða býr við fátækt. Með þessum gjöfum gleðjum við 110 börn sem fá jólagjöf um þessi jól. Alls söfnuðust 4.586 gjafir á landinu öllu. Innilegar þakkir fyrir fallegar gjafir og góða þátttöku.
Þetta verkefni fellur einstaklega vel að stefnu skólans. Skólinn er græn fána skóli og vinnur eftir uppeldi til ábyrgðar. Verkefnið „ jól í skókassa“ er á margan hátt endurvinnsluverkefni . Setja má notuð föt í kassana, þau þurfa bara að vera hrein og heil. Hægt er að setja leikföng sem enginn leikur sér lengur með eða mikið er til af á heimilinu og nýta þannig hlutina betur. Síðan er gleðin sem sprettur fram með því að gefa, gleðja og hjálpa öðrum sem búa við önnur kjör en við. Að lokum er hollt og gott að setja sig í spor annarra og kynnast því hvernig aðrir lifa.