Skólinn
Fréttir

Göngum í skólann í Mýró

28.4.2014 Fréttir

Á morgun, þriðjudaginn 30. apríl, hefst Göngum í skólann verkefnið okkar og mun það standa til fimmtudagsins 15. maí. 
Markmið verkefnisins er að: 
.    hvetja til aukinnar hreyfingar 
.    auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann 
.    fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar 
.    minnka bílaumferð í nágrenni grunnskóla

Við hvetjum foreldra til að fylgja yngstu börnunum, gangandi eða hjólandi og nota þá tækifærið og kenna þeim öruggustu leiðina í skólann. Að venju koma félagar í Slysavarnarfélaginu  Vörðunni og bjóða fram aðstoð við að stilla hjólahjálmana. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn.