Való 40 ára
Valhúsaskóli á Seltjarnarnesi fagnaði 40 ára afmæli á miðvikudaginn með fjölbreyttri dagskrá í skólanum þar sem fram komu núverandi og fyrrverandi nemendur og kennarar og slógu á létta strengi.Einnig flutti skólastjóri skólans, Guðlaug Sturlaugsdóttir, ávarp og bæjarstjóri Seltjarnarness, Ásgerður Halldórsdóttir sté á stokk og tilkynnti að bærinn hygðist gefa nemendaráði skólans gjöf sem gæti komið þeim að gagni í starfsemi þeirra.
Nemendur buðu upp á leiðsögn um húsnæðið, en þeir höfðu lagt mikinn metnað í að skreyta skólann og taka saman mikið magn upplýsinga sem sýndi sögu skólans í máli og myndum og hengt upp um veggi skólans. Þá var einnig boðið upp á veitingar í mötuneyti skólans.
Skólahald hófst í Valhúsaskóla haustið 1974. Fram að því hafði kennsla elstu deilda grunnskólans farið fram í Mýrarhúsaskóla. Allt fram til ársins 2004 voru skólarnir, Valhúsaskóli og Mýrarhúsaskóli, reknir sem tvær aðskildar stofnanir en árið 2004 voru þeir sameinaðir í Grunnskóla Seltjarnarness.
Fyrsti skólastjóri Valhúsaskóla var Ólafur H. Óskarsson. Hann vann fyrst sem ráðgjafi skólanefndar Seltjarnarness við hönnun skólans og vann náið með Vilhjálmi Hjálmarssyni, arkitekt hússins.
Árið 1997 lét Ólafur af störfum fyrir aldurs sakir en þá tók Sigfús Grétarsson við stöðunni og stýrði hann skólanum til ársins 2007 er núverandi skólastjóri, Guðlaug Sturlaugsdóttir, tók við starfinu.