Fréttir
![](/media/myro-myndir14-15/medium/Hrolfsskalamelur-1-5---gonguleidir-skolabarna---skyringarmynd.jpg)
Ný gönguleið
Vegna byggingarframkvæmda á Hrólfsskálamel verður ný gönguleið skólabarna í Mýrarhúsaskóla, sem sjá má á meðfylgjandi mynd, opnuð nk. mánudag (12. janúar). Skólaliði mun verða við gangbrautarljósin við Suðurströnd/Nesveg í næstu viku og leiðbeina skólabörnum með nýju gönguleiðina.
Ný gangbraut verður merkt yfir Hrólfsskálamel, milli göngustígs og skólalóðar, og hlið opnað á girðingu skólalóðar við gangbrautina. Þeir foreldrar sem aka börnum sínum til skólans eru beðnir um að aka alls ekki um Hrólfsskálamel, heldur hleypa börnunum út á bílastæði skólans við Nesveg eða við Skólabraut.
Með bestu kveðju stjórnendur
Með bestu kveðju stjórnendur
![Hrolfsskalamelur-1-5---gonguleidir-skolabarna---skyringarmynd](/media/myro-myndir14-15/xlarge/Hrolfsskalamelur-1-5---gonguleidir-skolabarna---skyringarmynd.jpg)