Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2015
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður haldin miðvikudaginn, 18. mars n.k., kl.17:00, í Félagsheimili Seltjarnarness.
Haustið 2006 hófst samvinna milli Garðabæjar og Seltjarnarness um lokahátíðina og er þetta því í níunda sinn sem haldin er sameiginleg lokahátíð.
Upplestrarkeppnin hefst formlega ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16.nóvember. Þá hefst undirbúningur allra nemenda í 7. bekk. Síðan eru valdir nemendur sem verða fulltrúar skólanna á lokahátíðinni.
Í ár lesa tólf nemendur frá sex skólum, Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla, Vífilsskóla og Valhúsaskóla
Skemmtiatriði verða frá öllum skólunum.