Valhúsaskóli

Skólasafn Valhúsaskóla

Skólasafn Valhúsaskóla

 

Skólasafn Valhúsaskóla er vinnustaður og upplýsingamiðstöð. Vinna á safninu miðar að því að þjálfa upplýsingalæsi nemenda, þ.e. bók- og tölvulæsi, og leggja grunn að sjálf­stæðum vinnubrögðum í námi.

 

Skólasafn Valhúsaskóla er í miðju skólans á efri hæð, bjart og rúmgott. Sæti eru fyrir 64 nemendur við borð og í lesbásum. Í tölvuveri bókasafns hafa nemendur aðgang að 14 tölvum til upplýsingaöflunar og heimildarvinnu.

Uppröðun og nýtingu safnsins má breyta, m.a. í fyrirlestrarsal, því búnaður er á hjólum.

 

Safnkostur

Safnkostur er um 7000 eintök, bækur, hljóðbækur, geisladiskar o.fl.

 

Starfsemi

Starfsemi skólasafns mótast af skólanámskrá og óskum kennara um samstarf og kennsluhætti. Náin samvinna kennara og bókasafnsfræðings um vinnu nemenda er forsenda þess að safnið nýtist.

Dæmi um notkun skólasafns Valhúsaskóla:

 

  • Heilir bekkir í fylgd kennara í ýmiss konar verkefnavinnu.
  • Hluti bekkjar vinnur verkefni á safni meðan aðrir eru í stofu hjá kennara.
  • Nemendur koma af sjálfsdáðum þegar þeir eru ekki í tíma.
  • Nemendur í fjarnámi, t.d. í erlendum tungumálum eða framhaldsskólaáfanga.
  • Nemendur taka stöðupróf.
  • Nemendur nýta sér þjónustu skólasafnsins við heimanám.

 

Oft eru margir þessara þátta í gangi í einu á safninu en nemendur með verkefni hafa alltaf forgang.

 

 

Bókasafns- og upplýsingafræðingur Valhúsaskóla er María S. Gunnarsdóttir.

 


Nám og kennsla