Leiðbeiningar fyrir bekkjarfulltrúa
Leiðbeiningar fyrir bekkjarfulltrúa
Hlutverk bekkjarfulltrúa er að stuðla að auknu samstarfi foreldra, kennara og nemenda innan hvers bekkjar. Bekkjarfulltrúar eru kosnir af foreldrum eða tilnefndir í samráði við fyrri bekkjarfulltrúa. Æskilegt er að bekkjarfulltrúar séu minnst tveir fyrir hvern bekk og að einungis sé skipt um annan bekkjarfulltrúann í hvert sinn, þannig að þeir sitji tvö ár í senn.
• Hann kallar saman foreldra barnanna í bekknum eigi sjaldnar en tvisvar á ári, í fyrra skiptið í upphafi skólaárs, eigi síðar en í lok septembermánaðar.
Þá ræðir hann við foreldra um markmið og framkvæmd bekkjarstarfs á komandi vetri. Fyrir þann fund undirbýr hann kosningu eftirmanns síns, hafi hann ekki verið kosinn á síðasta fundi að vori.
• Hlutverk bekkjarfulltrúa er að efla og styrkja samstarf foreldra/forráðamanna og nemenda auk þess að leitast við að treysta samband heimila og skóla innan hverrar bekkjardeildar.
• Bekkjarfulltrúar eru tengiliðir foreldra við umsjónarkennara og koma sjónarmiðum foreldra á framfæri þegar þess er þörf. Í samvinnu við kennara skipuleggja þeir í upphafi skólaárs almennan fund með foreldrum (á eftir námsefnisfundi) þar sem bekkjarstarf vetrarins er skipulagt. Bekkjarfulltrúi og umsjónarkennari leggja fyrir foreldrasáttmála Heimilis og skóla.
• Bekkjarfulltrúar fylgjast með því að foreldrastarfið sem ákveðið er í bekknum sé framkvæmt, t.d. bekkjarkvöld, umræðufundir og heimsóknir. Æskilegt er að skipta foreldrum bekkjarins í 2-5 manna hópa til að skipuleggja einstök verkefni vetrarins. Er þá eitt foreldri hópstjóri og tengiliður við bekkjarfulltrúa. Æskilegt er að eldri nemendur séu hafðir með í ráðum þegar bekkjarstarf vetrarins er skipulagt. Stefnt skal að því að halda a.m.k. þrjár uppákomur/skemmtanir á hverjum vetri.
• Bekkjarfulltrúar ræða við umsjónarkennara um skólastarfið og gang mála í bekknum og miðla upplýsingum til annarra foreldra t.d. á fundum eða með dreifibréfum/ tölvupósti í samvinnu við umsjónarkennara.
• Bekkjarfulltrúar eru tengiliðir bekkjarins við foreldraráð og skólaráð og sitja í fulltrúaráði foreldrafélagsins sem fundar a.m.k. þrisvar á vetri.
• Bekkjarfulltrúar safna í bekkjarmöppu gögnum um það sem gert hefur verið í foreldrastarfi í bekknum til dæmis myndum og öðru sem gaman er að eiga sem og ýmsum öðrum gögnum, t.d. frá skólanum, foreldrafélaginu og skólayfirvöldum. Bera ábyrgð á að mappan fylgi bekknum og fari eftir útskrift nemenda á skólabókasafnið.
• Bekkjarfulltrúar reyna að hlusta eftir sjónarmiðum nemenda varðandi andann í bekknum, bekkjarstarfið og störf foreldra í bekknum.
• Bekkjarfulltrúar aðstoða kennara við að skipuleggja þátttöku foreldra í skólastarfinu eftir því sem við á, t.d. í tengslum við vettvangsferðir, starfskynningar og heimsóknir foreldra í bekkinn.
• Bekkjarfulltrúar kjósa eftirmenn sína að vori og tilkynna breytingu til stjórnar. Þeir miðla upplýsingum til nýrra bekkjarfulltrúa og afhenda bekkjarmöppu.
• Bekkjarfulltrúar aðstoða stjórn foreldrafélagsins við framkvæmd einstakra stærri viðburða s.s. jólaföndur og vorhátíð.
• Bekkjarfulltrúar í 7. – 10. bekk bera ábyrgð á að manna foreldrarölt þau kvöld sem bekknum er úthlutað. Æskilegt er að foreldrar skrái sig á röltvaktir vetrarins að hausti. Bekkjarfulltrúar sjá til þess að minna fólk tímanlega á röltvaktir t.d. með SMS.
• Bekkjarfulltrúar skulu gæta þess að hafa velferð nemenda, foreldra og kennara að leiðarljósi í bekkjarstarfinu og virða trúnað um persónulega hagi nemenda og foreldra.