Unglingaráðgjafi
Hjá félagsþjónustu Seltjarnarness er starfandi unglingaráðgjafi en hlutverk hans er meðal annars að veita einstaklingsmiðaða ráðgjöf
* að veita nemendum stuðning
* að aðstoða unglinga við úrlausn vandamála
* að vinna að forvörnum, t.d. vörnum gegn vímuefnum og einelti
* að veita nemendum stuðning vegna vandamála heima fyrir
* að vera í samstarfi við heimili og forráðamenn
* að vera í samstarfi við kennara og aðra starfsmenn skólans
* að finna og þróa úrræði við hæfi í samráði við nemendur og fjölskyldur þeirra
Unglingaráðgjafi er bundinn þagnarskyldu. Hægt að ná í unglingaráðgjafann hjá Félagsþjónustu Seltjarnarness í síma 5959-100 eða senda tölvupóst.