Grunnskóli Seltjarnarness: Mýrarhússaskóli - Valhúsaskóli
Umferð

Umferðarfræðsla

Þann 28. september 2005 var undirritaður samstarfssamningur milli Grundaskóla og Umferðarstofu um að Grundaskóli yrði móðurskóli í umferðarfræðslu og staðfesti Sturla Böðvarsson samgönguráðherra þann samning.

Samningurinn var endurnýjaður ári síðar og um leið var gerður samningur við fleiri skóla á landsbyggðinni (markmiðið er einn í hverjum landsfjórðungi) um að vinna að eflingu umferðarfræðslu í grunnskólum landsins.

Þann 27. júní 2007 bættist Grunnskóli Seltjarnarness í hóp leiðtogaskólanna, þegar Sigfús Grétarsson skólastjóri skrifaði undir samning við Umferðarstofu. Verkefnið er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda.

Markmið með samningnum er m.a.:

  • að efla umferðarfræðslu og vera öðrum skólum til eftirbreytni og hvatningar
  • halda námskeið og fræðslufundi fyrir kennara skólum að kostnaðarlausu

 

Aðrir leiðtogaskólar á landsbyggðinni eru: Grunnskóli Reyðarfjarðar og Flóaskóli í Flóahreppi.




Hér er umferðarverkefni fyrir gagnvirka SMART töflu

Árstíðabundin verkefni

Hjólaleikni 4.bekkur

 Uppröðun á hjólabrautum

Hjóladagur- nokkrar hugmyndir um skipulag frá Heimili og skóla





UMFERÐARÖRYGGI:

Börn og reiðhjól - leiðbeiningar frá Umferðarstofu
Reiðhjólahjálmar - leiðbeiningar frá Umferðarstofu
Skyldubúnaður reiðhjóla - leiðbeiningar frá Umferðarstofu

 





Nokkrar gagnlegar heimasíður: 

grundaskoli1 

umferdarvefurinn      umferdarstofa





Vænlegar gönguleiðir til og frá skóla

Skólinn hefur látið prenta kort sem sýnir vænlegar gönguleiðir að skólanum. Þetta er teikning af skólunum og nánasta umhverfi. Þar má sjá göngustíga, hvar gangbrautir liggja yfir götur og hvar eru gangbrautarljós. Við vonumst til þess að þetta framtak skólans komi öllum að einhverjum notum. Kortið verður framvegis aðgengilegt í gegnum heimasíðu skólans, undir Grunnskólinn-umferð.


Kort af gönguleiðum til og frá skóla


Hagnýtt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica