Hjólreiðar nemenda

Hjólreiðar nemenda

Hjólreiðar
Samkvæmt  umferðarlögum  má  barn  yngra en 7 ára ekki hjóla á akbraut nema
undir  eftirliti  fullorðinna.  Samkvæmt  ábendingum lögreglunnar ættu börn
undir  10  ára aldri ekki að vera ein á ferð í umferðinni vegna þess að þau
hafa  ekki  náð  fullkomnu  valdi  á  grófhreyfingum og samhæfingu vantar í
hreyfingar. Jafnvægisskyn og hliðarsýn er ekki fullþroskað. Þau skynja ekki
hraða  og  fjarlægð ökutækja sem nálgast eða úr hvaða átt hljóð kemur. Börn
hafa  einfaldlega  ekki  nægilegan  þroska til að vera fullkomnlega ábyrgir
vegfarendur.  Þau  eiga  oft  erfitt  með að einbeita sér að fleiru en einu
atriði   í  einu  og  bregðast  rétt  við  flóknum  aðstæðum  sem skapast í
umferðinni.  Öll börn eiga að nota hjálm og öryggisbúnaður hjólsins þarf að
vera  í  lagi.   Skólinn  tekur ekki ábyrgð á skemmdum sem kunna að verða á
reiðhjólum nemenda.


Hagnýtt