Skólanámskrá

Skólanámskrá Grunnskóla Seltjarnarness

Skólanámskrá 2023-2024

Skólanámskrá er nánari útfærsla á aðalnámskrá grunnskóla sem er ígildi reglugerðar.  Í Aðalnámskrá er m.a. kveðið á um markmið og fyrirkomulag skólastarfs, kennsluskipan og viðmið um námskröfur og námsframvindu. Skólanámskrá er ætlað það hlutverk að lýsa skólastarfi hvers skóla, sérkennum hans, sérstöðu og staðbundnum aðstæðum. Hér áður fyrr var skólanámskrá gefin út í einu riti og afhent foreldrum eða gerð aðgengileg í bókarformi á vefsíðum skólanna. Í grunnskóla Seltjarnarness lítum við á vefsíðu skólans sem ígildi skólanámskrár og starfsáætlunar og setjum allar upplýsingar um skólastarfið á hana.  

 

Ástæða er til að taka það fram að hugtökin starfsáætlun og skólanámskrá renna á stundum saman í eitt hjá okkur skólafólki þar sem starfsfólki er tamara að nota heitið skólanámskrá en starfsáætlun.  

Í kennsluáætlunum er svo að finna ítarlegar upplýsingar um skipulag kennslunnar í hverri námsgrein, tengsl við hæfniviðmið aðalnámskrá, hvernig námsmat fer fram o.fl.  

 

Sé óskað frekari upplýsinga þá hvetjum við ykkur til að vera í sambandi við okkur (grunnskoli@grunnskoli.is





 

 


Skólinn