Náms og starfsráðgjöf
Við Grunnskóla Seltjarnarness eru starfandi tveir náms- og starfsráðgjafar í fullu starfi. Hlutverk þeirra er að standa vörð um velferð allra nemenda, styðja þá og liðsinna í málum sem snerta nám, skólavist, framhaldsnám og starfsval.
Námsráðgjafi er málsvari nemenda og trúnaðarmaður. Allir nemendur og foreldrar/forráðamenn þeirra eiga kost á að snúa sér til námsráðgjafa. Þeir geta komið að eigin frumkvæði og milliliðalaust eða fyrir milligöngu starfsfólks skólans. Fyrrverandi nemendur eru einnig velkomnir. Námsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu.
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er meðal annars
- að leiðbeina nemendum um góð vinnubrögð og námsvenjur
- að veita nemendum ráðgjöf í einkamálum
- að veita upplýsingar um nám, framhaldsskóla og atvinnulíf
- að aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir áhugasviðum sínum og setja sér markmið
- að vera stuðningsmaður nemenda vegna erfiðleika eða áfalla,
- að undirbúa nemendur fyrir flutning milli skóla og skólastiga
- að aðstoða nýja nemendur við aðlögun
- að sinna fyrirbyggjandi starfi með fræðslu og ráðgjöf
- að vinna með kennurum og öðru starfsfólki að bættum samskiptum í skólanum og gegn einelti
- að taka þátt í að skipuleggja starfsfræðslu.
Ester Þorsteinsdóttir ester.thorsteinsdottir@seltjarnarnes.is er náms- og starfsráðgjafi í 1.–6. bekk. Skrifstofa hennar er í stjórnunarálmu Mýrarhúsaskóla. Sími 595-9200 eða 595-9208. Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.
Ágústa Elín Ingþórsdóttir agustai@seltjarnarnes.is, er náms- og starfsráðgjafi í 7.–10. bekk. Skrifstofa hennar er í stofu 205a á 2. hæð Valhúsaskóla. Sími 595-9200 eða 595-9264. Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.
Námsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu.
Skýrsla námsráðgjafa 2018 - 2019
Skýrsla námsráðgjafa 2017 - 2018
Skýrsla námsráðgjafa 2015-2016
Skýrsla námsráðgjafa skólaárið 2014-2015
Skýrsla námsráðgjafa skólaárið 2013 - 2014
Skýrsla námsráðgjafa skólaárið 2012-2013
Skýrsla námsráðgjafa skólaárið 2011 -2012
Skýrsla námsráðgjafa skólaárið 2010 -2011