Skólinn
Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin 2017

13.2.2017 Fréttir

Undankeppni fyrir lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2017 fór fram á bókasafni Valhúsaskóla í dag, 13. febrúar.

 

Tólf nemendur í 7. bekk lásu upp og stóðu sig allir með prýði. Þeir fengu bókina Skóladrauginn eftir Ingu Mekkin Beck að gjöf frá skólanum fyrir þátttökuna.

 

Tveir nemendur voru valdir til að taka þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fyrir hönd Grunnskóla Seltjarnarness, Valhúsaskóla.

Þeir eru Harri Hreinsson og Jóhanna Hilmarsdóttir. Auk þess var Þórhildur Helga Hallgrímsdóttir valin sem varamaður. Við óskum þeim góðs gengis í lokakeppninni og öllum nemendum sem tóku þátt til hamingju með frammistöðuna.

 

Lokahátíðin fer fram í Garðabæ, 23. mars n.k.