Skólinn
Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2017

22.3.2017 Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður haldin fimmtudaginn, 23. mars n.k., kl.17:00, í Kirkjuhvoli, Safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ.  

Haustið 2006 hófst samvinna milli Garðabæjar og Seltjarnarness um lokahátíðina og er þetta því í ellefta sinn sem haldin er sameiginleg lokahátíð.

Upplestrarkeppnin hefst formlega ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16.nóvember. Þá hefst undirbúningur allra nemenda í 7. bekk.  Síðan eru valdir nemendur sem verða fulltrúar skólanna á lokahátíðinni.

Í ár lesa tíu nemendur frá fimm skólum, Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla  og Valhúsaskóla.

Nemendur Valhúsaskóla sem valdir voru til þátttöku í ár eru Harri Hreinsson og Jóhanna Hilmarsdóttir. Auk þess var Þórhildur Helga Hallgrímsdóttir valin sem varamaður. Við óskum þeim góðs gengis.

Skemmtiatriði verða frá öllum skólunum.