Skólinn
Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin 2017

24.3.2017 Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Garðabæ í gær, 23. mars.

Keppendur voru tíu talsins.  Þeir komu frá Álftanesskóla, Flataskóla,  Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Grunnskóla Seltjarnarness, Valhúsaskóla, tveir keppendur frá hverjum skóla.

Fyrir hönd Valhúsaskóla kepptu  Harri Hreinsson og Jóhanna Hilmarsdóttir. Varamaður var Þórhildur Helga Hallgrímsdóttir.

 Nemendur lásu samfelldan texta úr skáldsögunni  Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason, ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur og ljóð að eigin vali.

 Allir þátttakendur stóðu sig mjög vel en úrslit keppninnar urðu þau að

nemendur úr  Hofsstaðaskóla voru í 1. og 3. sæti og nemandi úr Álftanesskóla í 2. sæti.

 Skemmtiatriði voru frá öllum skólunum.  Þórdís Anna Grétarsdóttir í Valhúsaskóla lék listir með ,,diablo“ .  Hátíðinni lauk með því að lesarar og varamenn fengu bókargjöf og sigurvegarar auk þess gjafakort og viðurkenningarskjal frá Röddum, samtökum um vandaðan upplestur og framsögn. 

Veitingar í hléi voru í boði Mjólkursamsölunnar og Garðabæjar.