Skólinn
Fréttir

Göngum í skólann

8.5.2017 Fréttir

Á morgun, þriðjudaginn 9. maí, hefst Göngum í skólann verkefnið okkar og mun það standa til mánudagsins 22. maí.Markmið verkefnisins er að:

          hvetja til aukinnar hreyfingar

·         auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann

·         fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar

·         minnka bílaumferð í nágrenni grunnskóla

 

Við hvetjum foreldra til að fylgja yngstu börnunum, gangandi eða hjólandi og nota þá tækifærið og kenna þeim öruggustu leiðina í skólann. Félagar í Slysavarnarfélaginu  Vörðunni koma miðvikudaginn 10. maí og bjóða fram aðstoð við að stilla hjólahjálmana. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn. Sá árgangur sem nær besta árangrinum fær svo Græna skóinn.