Skólinn
Fréttir

Nýtt skólaár hafið

11.8.2017 Fréttir

Skrifstofa skólans hefur opnað eftir sumarleyfi og starfsfólk farið að hefja undirbúning fyrir nýtt skólaár.

Við hlökkum til samstarfs skólaárið 2017-2018 og hefjum skólaárið sem fyrr með viðtölum umsjónarkennara við nemendur og foreldra dagana 22. og 23. ágúst. Eftir hádegi þriðjudaginn 15. ágúst, munu umsjónarkennarar opna fyrir viðtalstíma á Mentor, þar sem foreldrar velja sér viðtalstíma.

Umsjónarkennarar munu senda heim eyðublöð sem er gott að foreldrar aðstoði börn sín við að fylla út. Ef einhverjir geta ekki prentað út heima er hægt að sækja útprentun eyðublöð á skrifstofu skólans. Foreldrar 1. bekkinga fá bréf frá umsjónarkennaranum með upplýsingum um viðtalstímann o.fl.

Megintilgangurinn með þessum viðtölum er að auka ábyrgð nemenda á eigin námi og þjálfa þá í að leggja mat á eigin vinnubrögð, frammistöðu og hlutverk auk þess að setja sér markmið. Þetta fyrirkomulag gefur foreldrum og nemendum einnig tækifæri til ræða við umsjónarkennara í upphafi skólaárs um eitt og annað sem þeim liggur á hjarta.

Skólasetning fer fram fimmtudaginn 24. ágúst:
• Nemendur í 1. – 6. bekk mæta á sal Mýrarhússkóla kl. 8:10 fimmtudaginn 24. ágúst þar sem skólinn verður settur. Kennsla hefst að athöfn lokinni. 
• Nemendur í 7.-10. bekk mæta á skólasetningu í Miðgarð Valhúsaskóla, fimmtudaginn 24. ágúst kl. 9:00. Kennsla hefst að athöfn lokinni.

Listar yfir námsgögn eru komnir á heimasíðu skólans, skólinn mun sjá nemendum í 1.-6. bekk fyrir ritföngum annað er á innkaupalistum og hvetjum við forráðamenn að yfirfara það sem er til heima og nýta frá fyrri árum.

Með góðri kveðju, skólastjórnendur