Skólinn
Fréttir

Þakkir

14.11.2017 Fréttir

Innilegar þakkir fyrir 128 gjafir í „jól í skókassa“ verkefninu í Grunnskóla Seltjarnarness í ár sem bárust frá nemendum, foreldrum þeirra og starfsfólki skólans. Hver einasta gjöf skiptir máli því hún er gjöf til barns sem býr við mjög erfiðar aðstæður í Úkraínu hvort sem það er munaðarlaust, fatlað, sjúkt eða býr við fátækt. Þetta eru 20 fleiri gjafir en í fyrra. Með þessum gjöfum gleðjum við 128 börn sem fá jólagjöf um þessi jól. Í ár söfnuðust 5.110 gjafir á landinu öllu og er þetta í fjórtánda sinn sem þessi söfnun fer fram. Kærar þakkir fyrir fallegar gjafir og góða þátttöku.