Skólinn
Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin

27.2.2018 Fréttir

Undankeppni fyrir lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2018 fór fram á
bókasafni Valhúsaskóla í dag, 27. febrúar. 
Átta nemendur í 7. bekk lásu upp og stóðu sig allir með prýði. Þeir fengu bókina Er ekki allt í lagi með þig? eftir Elísu Jóhannsdóttur að gjöf frá skólanum fyrir þátttökuna.
Tveir nemendur voru valdir til að taka þátt í lokahátíð Stóru
upplestrarkeppninnar fyrir hönd Grunnskóla Seltjarnarness, Valhúsaskóla.
Þeir eru Diljá Elíasdóttir og Kristinn Rúnar Þórarinsson. Auk þess var Ólafur
Björgúlfsson valinn sem varamaður. Við óskum þeim góðs gengis í
lokakeppninni og öllum nemendum sem tóku þátt til hamingju með
frammistöðuna.
Lokahátíðin fer fram á Seltjarnarnesi, 19. mars n.k.