Skólinn
Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2019

1.4.2019 Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Garðabæ 27. mars.

Keppendur voru tólf talsins.  Þeir komu frá Alþjóðaskólanum, Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Grunnskóla Seltjarnarness, Valhúsaskóla.

Fyrir hönd Valhúsaskóla kepptu Agnes Sólbjört Helgadóttir og Jens Heiðar Þórðarson. Varamaður var  James Eiríkur Hafliðason.

Nemendur lásu samfelldan texta úr skáldsögunni Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson, ljóð eftir Önnu Sigrúnu Snorradóttur og ljóð að eigin vali.

Allir þátttakendur stóðu sig með prýði en úrslit keppninnar urðu þau að Inga Fanney Jóhannesdóttir, Sjálandsskóla, varð í 1.sæti, Agnes Sólbjört Helgadóttir, Valhúsaskóla, í 2.sæti og Bjarki Óttarsson, Hofsstaðaskóla, í 3. sæti.

Nemendur úr fjórum skólum léku á hljóðfæri. Hátíðinni lauk með því að lesarar fengu bókargjöf og sigurvegarar auk þess peningaverðlaun og viðurkenningarskjal frá Röddum, samtökum um vandaðan upplestur og framsögn. Varamenn fengu bókargjöf frá Garðabæ.

Veitingar í hléi voru í boði Mjólkursamsölunnar og Garðabæjar.