Skólinn
Fréttir

Göngum í skólann hefst á þriðjudag

2.9.2019 Fréttir

Göngum í skólann verkefnið okkar hefst á morgun, þriðjudaginn 3. september, og stendur til 17. september. Þetta er í 13.  sinn sem Ísland er þátttakandi í þessu verkefni og stöðugt bætast fleiri skólar í hópinn. Við höfum verið með frá upphafi. Í fyrra voru yfir 60 skólar á landinu skráðir til leiks.         

Markmið verkefnisins er m.a. að:

  • hvetja til aukinnar hreyfingar
  • auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann
  • fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar
  • að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.
  • að reyna að stuðla að vitundarvakningu fyrir vistvænan ferðamáta um hversu „gönguvænt“ umhverfið er. 

Við hvetjum foreldra til að fylgja yngstu börnunum, gangandi eða hjólandi og nota þá tækifærið og kenna þeim öruggustu leiðina í skólann. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestan árangur. Þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn til varðveislu þar til næsta Göngum í skólann keppni verður í vor. GRÆNI SKÓRINN er veittur þeim árgangi yngri barnanna sem nær bestum árangri.