Skólinn
Fréttir

Jól í skókassa í Mýró

22.10.2019 Fréttir

 „Jól í skókassa“ er byrjað á ný.

Líkt og undanfarin ár tekur skólinn þátt í verkefninu „Jól í skókassa“. Það felst í því að fá börn og fullorðna til þess að gleðja börn í Úkraínu sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir sem eru settar í skókassa. Hægt er að fá tóma skókassa í skólanum og eru þeir við útgöngudyr skólans á tveim stöðum meðan birgðir endast.

Í fyrra söfnuðust 142 jólagjafir. Spennandi verður að fylgjast með hve mörgum jólagjöfum við söfnum í ár. Síðasti skiladagur í skólanum er fimmtudaginn 7. nóvember.

Þetta er kjörið verkefni fyrir fjölskylduna að vinna saman, vinahópa og gott efni á bekkjarkvöld og fleira. Það er gaman að gleðja aðra.

Nánari upplýsingar og myndir frá afhendingu gjafanna má nálgast á: www.kfum.is/skokassar

Bréf um verkefnið er sent til foreldra í gegnum Mentor.