Skólinn
Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin 2020

10.3.2020 Fréttir

Undankeppni fyrir lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2020 fór fram á bókasafni Valhúsaskóla mánudaginn, 9. mars.

Sjö nemendur í 7. bekk lásu upp og stóðu sig allir með prýði. Þeir fengu bókargjöf frá skólanum fyrir þátttökuna, Rannsóknina á leyndardómum eyðihússins eftir Snæbjörn Arngrímsson.

Tveir nemendur voru valdir til að taka þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fyrir hönd Grunnskóla Seltjarnarness, Valhúsaskóla.

Þeir eru Helga Sif Bragadóttir og Júlíana Rós Skúladóttir. Auk þess var Einar Valur Sigurðsson valinn sem varamaður. Við óskum þeim góðs gengis í lokakeppninni og öllum nemendum sem tóku þátt til hamingju með frammistöðuna.

Lokahátíðin fer fram í Garðabæ, 26. mars n.k.