Skólinn
Fréttir

Skólahlaup Valhúsaskóla

1.10.2020 Fréttir

Skólahlaup Valhúsaskóla fór fram þriðjudaginn 29. september í smá vætu en þó mildu veðri.

Nemendur stóðu sig almennt með prýði, voru jákvæðir og kátir. Eins og áður hefur komið

fram er aðalmarkmið hlaupsins holl hreyfing í fallegu umhverfi, samvera úti með skólafélögum

og kennurum. Framkvæmd hlaupsins gekk vel og tók allt starfsfólk skólans þátt í að

aðstoða íþróttakennarana sem sátu í brúnni. Eftir hlaup var nemendum beint inn á glæsilega

gervigrasvöllinn okkar, þar sem lögð var áhersla á teygjuæfingar.

Árangur marga nemenda var til fyrirmyndar

Hjartans þakkir fyrir velheppnað skólahlaup og fallega framkomu Valhýsingar!!!

Bestu kveðjur

Metta og Hrund

Mettímar frá upphafi : Anja Isis Brown 12,23 og Kári Steinn Karlsson 10,37.

Hlaupadrottningar Valhúsaskóla 2020

Eyrún Þórhallsdóttir 14,48

Hlaupakóngur Valhúsaskóla 2020

Hrannar Hólm Elíasson 12,10