Skólinn
Fréttir
gull1

Norræna Skólahlaupið

09.09.kl.09 Valhúsaskóla 2009

7.9.2009 Fréttir

 

 

 

Norræna Skólahlaupið

 

09.09.kl.09

 

Valhúsaskóla 2009

 

 

Miðvikudaginn 9.september kl. 9.00 verðu norræna skólahlaupið haldið.  Þá hlaupa allir nemendur skólans frá gervigrasi að bílastæði Golfskála.  Starfsfólk skólans aðstoðar íþróttakennara við að halda utan um framkvæmd hlaupsins. Það hefur ávallt  skapast skemmtileg stemning í skólanum  þegar haldin hafa verið skólahlaup. Við vonumst til þess að svo verði einnig í ár og að allir mæti með bros á vör.

Íþróttakennarar leggja ríka áherslu á  að hver  nemandi fari í hlaupið á sínum forsendum.  Sumir nemendur eru í góðri þjálfun á meðan aðrir nemendur hafa ekki hreyft sig reglulega til þessa og eru því ekki í eins góðri þjálfun.  Þó svo að  hraðskreiðustu hlaupagarparnir hljóti viðurkenningu  er aðalmarkmið skólahlaupsins  að hver nemandi fái að njóta hollrar hreyfingar og útivistar í góðra vina hópi .  

Við upphaf  hlaupsins fer fram upphitun á gervigrasvelli.  Þar eru nemendur með bestu tímana frá því í fyrra, þ.e.a.s. á tímatökuprófum,  kallaðir upp og klæddir í gular treyjur eins og tíðkast í frönsku hjólreiðakeppninni (Tour de France).   Að venju verða kennarar  með sjúkratöskur víðs vegar á hlaupaleiðinni ef einhverjir  nemendur meiðast og eins taka kennarar vel á móti hlaupagörpunum við sundlaug og aðstoða við teygjuæfingar.  Nemendur fá allar nánari upplýsingar um hlaupið  frá  íþrótta- og umsjónakennurum dagana  fyrir hlaupið.

Gera má ráð fyrir að  þröngt verði á þingi í búningsherbergjum í íþróttamiðstöð eftir hlaupið.  Þeir nemendur sem búa nálægt skólanum mættu því gjarnan fara heim í sturtu.  Það verður einnig þröngt á þingi í baðherbergjum og nemendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og háttvísi.  Ráðgert er að hefja kennslu aftur kl. 10.40.  en gert verður hlé á kennslu um hádegisbilið þar sem  veittar verða viðurkenningar fyrir bestan árangu í hverjum árgangi fyrir sig.

 

Mikilvægt er að forráðamaður láti skólann vita ef nemandi getur ekki tekið þátt í hlaupinu af einhverri ástæðu!!!! Nemendur sem ekki geta hlaupið en treysta sér hins vegar til að hjóla eða fara á línuskautum, verða að ræða við íþróttakennara og fá leyfi til þess.

 

Kær kveðja frá

 

Mettu og Erni

íþróttakennurum Valhúsaskóla