Skólinn
Fréttir
Upplestrarkeppni Való 23.febr. 2010

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2010

19.3.2010 Fréttir

 

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður haldin þriðjudaginn 23. mars n.k., kl.17:00 í Félagsheimili Seltjarnarness.

 

Haustið 2007 hófst samvinna milli Garðabæjar og Seltjarnarness um lokahátíðina og er þetta í fjórða sinn sem haldin er sameiginleg lokahátíð.

Upplestrarkeppnin hefst formlega ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16.nóvember. Þá hefst undirbúningur allra nemenda í 7. bekk.  Síðan eru valdir þrír nemendur sem fulltrúar okkar og keppa þeir við jafnaldra sína í Garðabæ.  Einnig var valinn varamaður og hefur sá nemandi tekið þátt í öllum undirbúningi.

Í ár lesa ellefu nemendur frá fjórum skólum, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Valhúsaskóla.

Skemmtiatriði verða frá öllum skólunum.