Skólinn
Fréttir
Brunaæfing í Való í mars 2010

Skólahlaup Való - föstudaginn 1. október

27.9.2010 Fréttir

 

Föstudaginn 1.október kl. 9.00 verður Skólahlaup Valhúsaskóla haldið. Þá hlaupa allir nemendur skólans frá gervigrasi að bílastæði Golfskála. Starfsfólk skólans aðstoðar íþróttakennara við að halda utan um framkvæmd hlaupsins.

 

Ávallt hefur skapast skemmtileg stemning í skólanum þegar haldin hafa verið skólahlaup. Vonumst við til þess að svo verði einnig í ár og að allir mæti með bros á vör.

Íþróttakennarar leggja ríka áherslu á það að hver og einn nemandi fari í hlaupið á sínum forsendum. Sumir nemendur eru vel þjálfaðir og í góðu líkamlegu ástandi á meðan aðrir nemendur hafa minna gert af því að stunda hreyfingu reglulega og eru því ekki í eins góðri þjálfun. Þó svo að veittar verði viðurkenningar fyrir hraðskreiðustu hlaupagarpana, er aðalmarkmið skólahlaupsins að hver nemandi fái að njóta hollrar og góðrar hreyfingar og útivistar í góðra vina hópi skólafélaga og starfsfólks. Við upphaf hlaupsins fer fram upphitun á gervigrasvelli. Þar eru nemendur, sem eru með bestu tímana á tímatökuprófum frá því árinu á undan, kallaðir upp og klæddir í gular treyjur eins og tíðkast í frönsku hjólreiðakeppninni (Tour de France). Að venju verða kennarar á leiðinni með sjúkratösku ef einhverjir nemendur meiðast og eins við sundlaug þar sem kennarar taka vel á móti hlaupagörpunum og aðstoða við teygjuæfingar. Nemendur fá allar nánari upplýsingar frá íþrótta- og umsjónakennurum, nokkrum dögum fyrir hlaupið.

Gera má ráð fyrir að ansi þröngt verði á þingi í búningsherbergjum í íþróttamiðstöð eftir hlaupið. Þeir nemendur sem búa nálægt skólanum mættu því gjarnan fara heim í sturtu. Þeir nemendur sem nýta sér búningsaðstöðu íþróttamiðstöðvar eru beðnir um að sýna þolinmæði og háttvísi.

Mötuneytið er svo opið eins og venjulega fyrir svanga hlaupagarpa, en þeir sem vilja snæða heima eftir sturtu mega gera það. Ráðgert er að hefja kennslu aftur kl.10.40 en gert verður hlé á kennslu um hádegisbilið þar sem veittar verða viðurkenningar fyrir bestu afrekin í hverjum árgangi fyrir sig.

Mikilvægt er að forráðamaður láti skólann vita ef nemandi getur ekki tekið þátt í hlaupinu af einhverri ástæðu!!!!

Nemendur sem ekki geta hlaupið en treysta sér til að hjóla eða fara á línuskautum, verða að ræða við íþróttakennara og fá leyfi til þess.

 

 Kær kveðja frá

Mettu og Erni

íþróttakennurum Valhúsaskóla