Skólinn
Fréttir
jola_markus

Skólahald í Mýró næstu daga

14.12.2010 Fréttir

 

Föstudaginn 17. des. og mánudaginn 20. des. verður skólahald með óhefðbundnum hætti.

 

17. des. mæta nemendur í skólann kl. 9:00 – 12:30. Litlu jólin verða haldin í stofunum og farið verður í heimsókn í Seltjarnarneskirkju þar sem 4. bekkingar sýna helgileik. Íþróttir og list- og verkgreinarkennsla fellur niður þennan dag. Nemendur mega koma með smákökur og ½ l. af gosi. Skjólið verður opið frá kl. 12:30

Mánudaginn 20. des. verða jólaskemmtanir í sal skólans. Nemendur mæta aðeins á skemmtun hjá sínum bekk. Skjólið verður lokað þennan dag.

Mánudagur 20. des.  -  Jólaskemmtanir

9:00 – 10:00    1. KL, 2.HG, 3.HF, 5.GUG, 6.GIE.

10:30 – 11:30  1.MKJ, 3.IÓÞ, 4.LAS, 5.HGO, 6.LBÞ.

12:00 – 13:00  1. SIJ, 2.FR, 4.ERK, 6.KH.       

 

Kennsla hefst að nýju þriðjudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.

Með jólakveðju

Stjórnendur