Skólinn
Fréttir
upp3

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2011

21.3.2011 Fréttir

 

Haustið 2007 hófst samvinna milli Garðabæjar og Seltjarnarness um lokahátíðina og er þetta í fimmta sinn sem haldin er sameiginleg lokahátíð.

Upplestrarkeppnin hefst formlega ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16.nóvember. Þá hefst undirbúningur allra nemenda í 7. bekk.  Síðan eru valdir þrír nemendur sem fulltrúar okkar og keppa þeir við jafnaldra sína í Garðabæ.  Einnig er valinn varamaður og tekur sá nemandi þátt í öllum undirbúningi.

Í ár lesa ellefu nemendur frá fjórum skólum, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Valhúsaskóla.

Skemmtiatriði verða frá öllum skólunum.

 

upp7