Skólinn
Fréttir
IMG_1649

Göngum í skólann hefst 1. sept.

31.8.2011 Fréttir

Á morgun, 1. september, hefst Göngum í skólann verkefnið okkar og mun það standa til 21. sept. eða í þrjár vikur. Þetta er í fimmta  sinn sem Ísland er þátttakandi í þessu verkefni og stöðugt bætast fleiri skólar í hópinn.

 

Í fyrra voru 52 skólar á landinu skráðir til leiks.          Markmið verkefnisins er að:

·         hvetja til aukinnar hreyfingar

·         auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann

·         fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar

·         minnka bílaumferð í nágrenni grunnskóla

Við hvetjum foreldra til að fylgja yngstu börnunum, gangandi eða hjólandi og nota þá tækifærið og kenna þeim öruggustu leiðina í skólann. Veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestan árangur. Þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn til varðveislu þar til næsta Göngum í skólann keppni verður í vor.

Göngum í skólann í sept.2010