Skólinn
Fréttir
Jól í skókassa 2009

Jól í skókassa

30.10.2012 Fréttir

Skólinn tekur þátt í verkefninu „Jól í skókassa“. Það felst í því að fá börn og fullorðna til þess að gleðja börn í Úkraínu sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir sem eru settar í skókassa.

IMG_2340

Nemendur Mýrarhúsaskóla fengu kynningu á verkefninu í vikunni og fylgdust mjög vel með. Í fyrra söfnuðust 201 jólagjöf. Spennandi verður að fylgjast með í næstu viku hve mörgum skókössum við söfnum í ár. Síðasti skiladagur í skólanum er miðvikudaginn 7. nóvember.

Nánari upplýsingar og myndir má nálgast á: www.skokassar.net

Bréf um verkefnið var sent til foreldra í gegnum Mentor í síðustu viku. 

IMG_2343