Skólinn
Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin-undankeppni

6.3.2013 Fréttir

Undankeppni fyrir lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2013 fór fram á bókasafni Valhúsaskóla í dag, 5. mars.

Tólf nemendur í 7. bekk lásu upp og stóðu sig allir með prýði.  Þeir fengu bókina Gegnum glervegginn eftir Ragnheiði Gestsdóttur að gjöf frá skólanum fyrir þátttökuna.

 

Þrír nemendur voru valdir til að taka þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fyrir hönd Grunnskóla Seltjarnarness, Valhúsaskóla. 

Þeir eru:  Ásdís Lóa Erlendsdóttir 7SF, Egill Breki Scheving 7SF og Silja Jónsdóttir 7SF.  Auk þess var Ragna Kristín Guðbrandsdóttir 7RMÓ valin sem varamaður.  Við óskum þeim góðs gengis í lokakeppninni og öllum nemendum sem tóku þátt til hamingju með frammistöðuna.

 

Lokahátíðin fer fram í félagsheimilinu Garðaholti, 19. mars n.k.