Skólinn
Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2013

14.3.2013 Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður haldin þriðjudaginn, 19. mars n.k., kl.17:00,  í Félagsheimilinu í Garðaholti, Garðabæ.

Haustið 2007 hófst samvinna milli Garðabæjar og Seltjarnarness um lokahátíðina og er þetta í sjöunda sinn sem haldin er sameiginleg lokahátíð.

Upplestrarkeppnin hefst formlega ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16.nóvember. Þá hefst undirbúningur allra nemenda í 7. bekk.  Síðan eru valdir nemendur sem verða fulltrúar okkará lokahátíðinni.

Í ár lesa ellefu nemendur frá fimm skólum, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla, Valhúsaskóla og Vífilsskóla.

Skemmtiatriði verða frá öllum skólunum.