Skólinn
Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar – 2013

20.3.2013 Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Félagsheimilinu í Garðaholti, Garðabæ í gær, 19. mars.Keppendur voru ellefu talsins.  Þeir komu frá Flataskóla,  Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla, Vífilsskóla  og Grunnskóla Seltjarnarness, Valhúsaskóla. 

Fyrir hönd Valhúsaskóla kepptu Ásdís Lóa Erlendsdóttir, Egill Breki Scheving og Silja Jónsdóttir.  Varamaður var Ragna Kristín Guðbrandsdóttir.

 

Nemendur lásu samfelldan texta úr skáldsögunni  Benjamín dúfa  eftir Friðrik Erlingsson, ljóð eftir Þóru Jónsdóttur og ljóð að eigin vali.

 

Allir þátttakendur stóðu sig mjög vel en úrslit keppninnar urðu þau að

Egill Breki Scheving  í Valhúsaskóla varð í 1. sæti, Silja Jónsdóttir í Valhúsaskóla í  2. sæti og Jón Alfreð Sigurðsson í Vífilsskóla í 3. sæti.

 

Nemendur frá Tónlistarskóla Garðabæjar sáu um tónlistarflutning áður en lesturinn hófst og að lestri loknum voru skemmtiatriði frá öllum skólunum.  Hátíðinni lauk með því að allri þátttakendur fengu bókargjöf  og sigurvegarar auk þess peningaverðlaun og viðurkenningarskjal frá Röddum, samtökum um vandaðan upplestur og framsögn.

 

Veitingar í hléi voru í boði Mjólkursamsölunnar og Garðabæjar.