Skólinn
Fréttir

Göngum í skólann í Mýró

4.9.2014 Fréttir

Föstudaginn 5. september, hefst Göngum í skólann verkefnið okkar og mun það standa til 25. sept. Þetta er í áttunda  sinn sem Ísland er þátttakandi í þessu verkefni og stöðugt bætast fleiri skólar í hópinn. Við höfum verið með frá upphafi. Í fyrra voru 64 skólar á landinu skráðir til leiks.         

Markmið verkefnisins er m.a. að:

·         hvetja til aukinnar hreyfingar

·         auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann

·         fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar

·         minnka bílaumferð í nágrenni grunnskóla

 

Við hvetjum foreldra til að fylgja yngstu börnunum, gangandi eða hjólandi og nota þá tækifærið og kenna þeim öruggustu leiðina í skólann. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestan árangur. Þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn til varðveislu þar til næsta Göngum í skólann keppni verður í vor.