Skólinn
Fréttir

Kennaranemar frá Danmörku

15.9.2014 Fréttir

Í Valhúsaskóla eru núna þrír kennaranemar frá Háskólanum í Århus, Heidi Lund Pedersen, Laura Nielsen Middelhede og Stephanie Hansen. 

 Þær eru búnar að vera í eina  viku og verða til 13. október. Allar eru á öðru ári í kennaranáminu og hafa dönsku sem aðalvalgrein og líffræði og samfélagsfræði sem aðra valgrein.  Hjá okkur koma þær að dönskukennslu í 9.- og 10.bekk ásamt þemavinnu í 9.bekk.