Skólinn
Fréttir

JÓL Í SKÓKASSA - þakkir

18.11.2014 Fréttir

Kærar þakkir fyrir 111 gjafir í „jól í skókassa“ verkefninu í Grunnskóla Seltjarnarness/ Mýrarhúsaskóla í ár sem bárust frá nemendum, foreldrum þeirra og starfsfólki skólans. Hver einasta gjöf skiptir máli því hún er gjöf til barns sem býr við mjög erfiðar aðstæður í Úkraínu hvort sem það er munaðarlaust, fatlað, sjúkt eða býr við fátækt.

Nýr hópur barna hefur bæst í hópinn sem fá gjafir en það eru börn flóttafólks frá austurhluta landsins þar sem stríðsátök geysa. Með þessum gjöfum gleðjum við 111 börn sem fá jólagjöf um þessi jól. Í ár söfnuðust 4.533 gjafir víðsvegar frá Íslandi og er þetta í ellefta sinn sem þessi söfnun fer fram. Innilegar þakkir fyrir fallegar gjafir og góða þátttöku.