Skólinn
Fréttir

Ný gönguleið

9.1.2015 Fréttir

Vegna byggingarframkvæmda á Hrólfsskálamel  verður ný gönguleið skólabarna í Mýrarhúsaskóla, sem sjá má á meðfylgjandi mynd, opnuð nk. mánudag (12. janúar). Skólaliði mun verða við gangbrautarljósin við Suðurströnd/Nesveg í næstu viku og leiðbeina skólabörnum með nýju gönguleiðina.

 Ný gangbraut verður merkt yfir Hrólfsskálamel, milli göngustígs og skólalóðar, og hlið opnað á girðingu skólalóðar við gangbrautina. Þeir foreldrar sem aka börnum sínum til skólans eru beðnir um að aka alls ekki um Hrólfsskálamel, heldur  hleypa börnunum út á bílastæði skólans við Nesveg eða við Skólabraut. 
Með bestu kveðju stjórnendur