Skólinn
Fréttir

Göngum í skólann í Mýró hefst 9. sept.

4.9.2015 Fréttir

Miðvikudaginn 9. september, hefst Göngum í skólann verkefnið okkar og mun það standa til 29. sept. Þetta er í níunda  sinn sem Ísland er þátttakandi í þessu verkefni og stöðugt bætast fleiri skólar í hópinn. 

 Við höfum verið með frá upphafi. Í fyrra voru 65 skólar á landinu skráðir til leiks.         

Markmið verkefnisins er m.a. að:

·         hvetja til aukinnar hreyfingar

·         auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann

·         fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar

·         minnka bílaumferð í nágrenni grunnskóla

 

Við hvetjum foreldra til að fylgja yngstu börnunum, gangandi eða hjólandi og nota þá tækifærið og kenna þeim öruggustu leiðina í skólann. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestan árangur. Þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn til varðveislu þar til næsta Göngum í skólann keppni verður í vor. Auk þess fær sá árgangur sem besta heildarþátttökunni nær GRÆNA SKÓINN.